August 22, 2006

Skrítin verðlagning

Mikið skil ég ekki verðlagningu á þjónustu fyrir börn.

Ég var í DK fyrir stuttu og við fórum í Fields(verslunarmiðstöð á Amager). Á efstu hæð er leiksvæði fyrir börn. Klukkutíminn kostar 25DKR fyrir börnin. Þetta er snilldarstaður, þar sem hægt er að láta börnin leika sér á meðan fullorðnir geta fengið sér öl, mat og aðra hressingu. Við Elsa sem sagt fórum með Ara þarna og ég náði í tvo öllara og var þetta hin mesta skemmtun. Þetta var reyndar smá puð fyrir okkur, því við þurftum að elta Ara Þröst í smá ævintýrahúsi(mjög flott hús, með rennibrautum, boltum, keilum og mörgu öðru sniðugu fyrir börn). En þegar kom að brottför, var stráknum mútað með ís og við meira en tilbúin að greiða aðeins 25DKR fyrir svona mikla skemmtun sem Ari fékk á þessum klukkutíma. En nei nei, vinsamlegast greiðið 125 DKR fyrir þetta. Þá þurftum við sem sagt að greiða fyrir veru okkar líka, 50DKR á kjaft. Af hverju að greiða fyrir okkur? Við gerðum ekkert nema að horfa á strákinn leika sér. Ég hefði alveg getað verið án svitans sem ég uppskar í eltingarleiknum við strákinn. En þessi pæling á sér undanfara.....

... á Íslandi er staður sem rukkar á svipaðan hátt. Þessi staður er hinn vinsæli og frábæri Fjölskyldu- og húsdýragarður. Þar fá börnin frítt inn og foreldrarnir borga. En hvað er ég svo að pæla? Jú, ég er ekki að fara í húsdýragarðinn fyrir mig, ég er ekki að fara á leiksvæði fyrir mig, þetta er allt fyrir Ara Þröst. Því skyldi ég þurfa að borga fyrir mig en ekki hann. Mér liði mikið betur með að borga eitt og hálft verð fyrir Ara Þröst og ég fengi frítt. Sama kerfi mætti leiksvæðið á Fields koma sér upp.
Gaman væri að heyra ykkar skoðun

Arnar
p.s. Bridge-landsliðið er í 4.sæti í evrópumótinu sem er í Póllandi ;-)

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Thu verdur gladur med thetta kerfi thegar thu ert kominn med 4 born

Kvedja
Skuli i Weipa

10:01 PM  
Blogger Arnar said...

Góður punktur,
en mér líður ekki vel að þurfa að vera borga fyrir sjálfan mig, það er aðal málið. Ég er t.d. alveg viss um að fleiri færu í húsdýragarðinn ef það væri frítt fyrir fullorðna.

2:10 PM  
Anonymous Anonymous said...

Mér finnst þetta kannski allt í lagi með húsdýragarðinn. Bara skrítið.

En á leiksvæði í danmörku, þar sem maður getur skilið eftir börnin í gæslu. Ekki eins og við værum að nota aðstöðuna, nema þá að láta Ara fá útrás. Og við þurftum að borga fyrir hann og okkur. Skil vel að fólk væri ekki til í að borga fyrir 3 börn eða fleiri.

3:27 PM  
Blogger Dr. Hannes Hafsteinsson said...

Skil ykkur rosalega vel, fékk sama sjokkið þegar ég fór þangað. Hins vegar er ekki hægt að skilja börnin eftir þarna í gæslu :( öll börn þurfa að vera með fullorðinn með sér. Það er litið á þetta sem svona stað fyrir pabba að koma og "slaka" á með krakkana á meðan konan verslar, svona í staðinn fyrir að draga grísinn með sér á pöbbinn.

og verð að vera samt sammála Skúla þar sem ég er í þeirri stöðu, vá hvað ég er fegin að borga lítið fyrir börnin og svo bara líka fyrir mig, hehe

6:21 AM  

Post a Comment

<< Home